Monday, December 29, 2008

 

Morðæði.

Enn eru ísraelsmenn byrjaðir. Aðferðirnar eru svipaðar og þýsku nasistarnir notuðu til að ná árangri. Ef einn var sekur af 100 sem þeir stilltu upp við vegginn skutu þeir alla. Voru þá vissir um að hinum seka hafði verið refsað og hinir 99 skiptu engu. Megnið af því fólki sem síonistarnir eru nú að drepa eru venjulegir saklausir borgarar. Þetta er gert í krafti stuðningsins frá USA. Þar hafa gyðingar löngum haft tögl og hagldir í fjármálalífi, hergagnaiðnaði og reyndar í stjórnmálum einnig. Hamas samtökin eru nú kannski ekki nein guðslömb. Ekkert réttlætir þó framferði ísraelsmanna. Þeim er nákvæmlega sama um viðbrögð heimsins. Þeir vita sem er að þeir geta farið sínu fram. SÞ geta ekkert. Kanarnir ráða þar öllu sem þeir vilja. Við verðum að horfa uppá morðæði þessarar þjóðar. Enginn tekur heldur mark á okkur frekar en fyrri daginn þó ISG haldi það ef til vill. Konan sem raunverulega hélt að við ættum mökuleika á setu í öryggisráðinu og eyddi mörg hundruð milljónum í það vonlausa verkefni. Peningum og tíma sem betur hefði verið varið til gagnlegri hluta.

Í gær lauk ég við ævisögu Dags Sigurðarsonar. Ég gef þessari bók ekki háa einkunn. Hálf sundurlaus lesning og maður er ekki miklu nær um þennan þekkta íslending en áður.

Við kisi erum hér í miklum rólegheitum. Enn blíðviðri og við báðir búnir að viðra okkur. Af sérstökum ástæðum sló ég Tangavatnsför á frest í gær. Hef þó alls ekki afskrifað veiðitúr. Spáin enn ágæt þó heldur fari veður kólnandi. Bestu kveðjur frá okkur fósturfeðgum, ykkar Hösmagi.

Comments:
Ekki er ég nú sammála þessu viðhorfi til þátttöku Íslands í alþjóðasamvinnu. Munum að dropinn holar steininn.

Hins vegar var yfirlýsing ISG allt of veikt orðuð í ljósi viðurstyggilegra fjöldamorða Ísraelsmanna á flóttamönnum í nauð.

Gleðilegt ár annars.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online