Saturday, March 22, 2008

 

Stórflóð....

af pappír hér á borðinu.Ég er að reyna að koma skipulagi á þetta kaos af útprentunum, umslögum og öðru í formi pappírs. Gengur fremur hægt því aðstoðarmaðurinn er bókstaflega dýrvitlaus yfir þessu.Þetta er Dýri. Getur stundum ekki látið pappír í friði. Hvorki venjuleg gluggaumslög né dýrar bækur. Eins gott að hann komist ekki að í Árnasafni. Og það er stundum erfitt til ráða þegar vináttan er einlæg.Þó ég hafi kannski týnt ástinni, þessari dásamlegu tilfinningu mannsins, þá á ég enn ástina á kettinum mínum. Það er bara þónokkuð, ykkar Hösmagi.

Comments:
En ást þín á Raikonen er nú líka með því innilegasta hugfóstri sem undirritaður hefur orðið vitni að, auk þess sem mér hefur sýnst sem svo að ein og ein skvísa dúkki alltaf inn í líf Hösmaga! Hehehe. Gleðilega páska, Sössinn
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online