Wednesday, February 06, 2008

 

Lífræna.

Hún er flott bílaauglýsingin um Lexus Hybrid bílinn. Sérstaklega er akurinn sem bifast í vindinum fallegur. Þarna eru upplýsingar um kosti þessa glæsivagns. Hann gefur frá sér aðeins minna af CO2 en aðrir bílar. Gengur fyrir lífrænu eldsneyti sem unnið er úr korninu af þessum fallega akri. Og sumir umhverfissinnar mega vart vatni halda yfir þessu undraverki tækninnar. En það eru fleiri hliðar á málinu. Matvælaverð í heiminum hækkar með stjarnfræðilegum hraða eftir að menn tóku að nota korn og ýmis önnnur matvæli til framleiðslu á eldsneyti. Framboðið af korni minnkar og verðið hækkar. Ræktunarland er ekki ótakmarkað og því er gripið til þess ráðs að ryðja skóg og brjóta nýtt land til ræktunar. Við það minnkar upptaka skóganna af CO2
og sumir tala því um að eigendur nýja Lexus bílsins séu í raun enn meiri umhverfissóðar en við hin sem ökum með gamla bensínrokkinn innanborðs. Það má líka nefna að miklar tækniframfarir hafa orðið í gömlu bensínvélinni. T.d. með Hemi systeminu sem er í grænu þrumunni minni. Ég átti 6 strokka Cherokee árgerð 1995. Vélin 190 hestöfl. Í sparakstri tókst mér að koma honum í 14,8 l af bensíni á 100 km.Græna þruman er með 8 strokka 330 ha vél. Í sparakstri eyðir hún um 12 lítrum á 100 km. Og er þó hálfu tonni þyngri en sá gamli. Ég held að stundum sé rétt að skoða þessa hluti vel. Það er gamall sannleikur að við búum stundum til nýjan vanda þegar sá gamli er leystur. Og það kann ekki góðri lukku að stýra að stara alltaf á sama blettinn og loka augunum fyrir augljósum hlutum. T.d. stríði og stríðsleikjum. Þetta var nú bara smáhugleiðing í tíðindaleysi dagsins. Bestu kveðjur, ykkar Hösmagi.

Comments:
Ég veit það er ljótt að stríða gömlum Hösmaga en stenst þó ekki mátið að rifja upp hjartagæsku hans, er ég fór á Grænni Þrumu til Landmannalauga, og hver keyrður kílómetri kostaði 50 krónur.

Annars sá ég þig á tapasbar í dag með sódavatn, vindil og krossgátu. Alltaf jafn flottur! Þinn Sössi
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online