Saturday, September 29, 2007

 

LSD

Hösmagi er á trippi. Ekki á svona dýri af hestakyni. Þá héti það tryppi.Og raunar alls ekki á LSD. Það er bara LCD. Nýr flatskjár eftir allar brekkurnar. Gamla góða Sharp 20 tommu er horfið á braut eftir 24 ára dygga og góða þjónustu. Þrjátíu og tvær tommur af Bush, Geir, Jóni forseta, sem er nú aðalmaðurinn, komnar í staðinn. Þetta var nú eiginlega allt sjálfgert. Eftir afgerandi morfíntripp á Lsp. um síðustu helgi ákvað Hösmagi að nota peningana sem áttu að duga fyrir jarðarförinni til annara hluta. Fresta jarðarförinni um mörg ár. Byggja nýjar borgir og elska svolítið lengur. Og miklu meira.Hver einasti dagur sem hægt er nota til góðra verka, njóta lífsins og vera hress og kátur, er mikilvægari en allt annað. Ég hitti börnin mín 3 í dag. Það er mikið. Að auki hitti ég barnabörnin mín 5. Það var alveg stórmikil viðbót. Borðaði með skáldinu mínu , sem er á leið úr landi í fyrramálið.Glasgow, Edinborg, Amsterdam og Berlín. Einu sinni sagði maður: Berlín mín. Yndislega Berlín mín. Kannski stend ég við hið laufskrýdda linditré á næsta ári. Bráðabati, jafnaðargeðið, og hin takmarkalausa ást á lífinu hafa skilað gömlum veiðiref meira á einum degi en á mörgum árum. Elsku krúttin mín kær. Við Kimi sendum kveðjur, í allar áttir. Ykkar Hösmagi.

Comments:
Það er gott að heyra að glatt er á hjalla minn kæri. Ég er á leið til Inverness í dag að heimsækja vinkonu okkar lækninn. Komum aftur í fyrramálið og heyrumst þá vonandi. Bestu kveðjur til ykkar félaganna, Sölvi
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online