Wednesday, September 26, 2007

 

Heima á ný.

Eftir tæplega viku fjarveru er Hösmagi aftur heima hjá sér. Það er ánægjulegt og gott. Ekki spillti að dýrið rauðbröndótta beið eftir fóstra sínum og hjúfrar sig nú á teppinu góða. Skáldið skilaði föður sínum á heimaslóðir og tók svo rútuna til síns heima. Það er svona týpiskt haustveður með regni og nokkrum vindi og þokan grúfir fyrir fjallinu góða. En ég held að það sé aftur komið vor í huga mér. Glaður yfir að vera heima á ný og fullur þakklætis til yndislega fólksins sem ég kynntist síðustu daga. Þeir voru vissulega erfiðir en rólyndi hugans og hin óbilandi bjartsýni gerðu þá líka létta og bærilega. Ég mun fara mér hægt næstu daga. Allt stefnir í rétta átt með ótrúlegum hraða. Allir góðu straumarnir skiluðu sér og það er mér ómetanlegt. Nú er að byggja sig upp á ný og halda til starfa þegar rétti tíminn rennur upp. Þegar óvænt áföll skella á er gott að staldra við. Hugleiða lífið og tilveruna og vinna sig út úr aðsteðjandi vanda. Ekkert bendir til annars en að allt fari á besta veg. Ástin á lífinu er svo sannarlega enn til staðar. Og þakklæti til allra sem hafa reynst mér svo vel s.l. mánuð. Við Kimi sendum ykkur öllum fagnaðarkveðjur. Meira síðar, ykkar Hösmagi.

Comments:
Mikið er gott að heyra að allt gekk vel og að þú sért aftur kominn heim til Raikonens. Ég sendi ykkur báðum kveðju héðan frá Edinborg, hún ætti að berast með norð-vestan áttinni síðdegis.
 
Gott að fá góðar fréttir. Kærar kveðjur héðan frá endamörkum heimsins.
(Ertu í Edinborg, HSE? Ja, hérna... ekki vissi ég af því)
 
Ég þakka góðar kveðjur.Ég ætla að svara Sigga í leiðinni. Helga er í Edinborg. Þú veist það Siggi minn að þetta lið tollir ekki lengi heima á skerinu. Skáldið að sjálfsögðu á förum líka. Sem vonlegt er finnst mér. Sölvi flýgur á eftir sinni heittelskuðu á sunnudaginn. En þau koma brátt aftur. Það verður ljúft að venju.Bestu kveðjur frá okkur Rækó yfir öll höf heimsins.
 
...ekki get ég sjálfur mikið sagt sem ekki einu sinni tolli í heimsálfunni. Bestu kveðjur aftur.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online