Saturday, July 28, 2007

 

Svali.

Hitinn í 5 gráður. Sólin er komin upp og smátt og smátt hlýnar. Í dag, sunnudag 29., er síðasti planaði laxveiðidagur hjá Hösmaga gamla. Krækti í einn í gær og var sáttur við það. Ekki að sjá mikla fiskför um ána en veðrið var dásamlegt. Smá austanandvari og logn á milli. Það væri svo sem ósköp indælt ef hægt væri að vekja hunterinn í dag. Laxinn er ólíkindatól og aldrei að vita hvað kann að gerast. Nú fara menn brynjaðir ullara og vöðlum til veiða. Eftir afrek næstliðinnar viku er ég nokkuð sáttur við árangurinn í sumar. Hugurinn kominn hálfa leið í Veiðivötn. Leggjum í hann á fimmtudag og nú er að vona að veðrið verði hagstætt.
Ég vaknaði hálfdasaður í morgun. Það er lýjandi að standa við veiði í 12 klukkutíma. Ber mig þó ágætlega og held hress að árbakkanum rétt fyrir sjö. Svo verður ágætt að leggja sig í hléinu og búa sig undir endasprettinn. Það er þó nóg af lausum dögum í ánni í ágúst og aldrei að vita nema þráðurinn verði tekinn upp aftur. Kimi situr nú hér í glugganum og horfir heimspekilega út í sólskinið. Hann ætlaði bókstaflega að éta fóstra sinn í gærkvöldi. Fagnaði mér ógurlega með kúnstum og háværu mali. Ekki afráðið með félagsskap fyrir hann meðan ég verð í Veiðivötnum. Það verður allavega einhver sem lítur við og heilsar upp á rauða dýrið. Það er mikil tilhlökkun til Veiðivatnafarar. Þar er gott að vera í heillandi náttúru. Ef menn vilja fræðast um þetta svæði, spendýr, fugla, fisk og jarðfræði er fróðlegt að kíkja á veidivotn.is. Ágætur vefur sem Örn Óskarsson hefur umsjón með. Fréttir af veiði og myndir líka. Nóg að sinni. Sólskinskveðjur frá okkur Kimi, ykkar Hösmagi.

Comments:
Já, ég er líka orðinn afar spenntur að leggja í hann! Held ég muni veiða langmest af okkur öllum þetta árið.
 
Humm. Jæja,jamm. Svo þú heldur það, karlinn. Vér skulum nú sjá. Allavega verður indælt að vera innfrá. Kannski loks komið að tveggja stafa tölunni. Gengið gæti sem best heitið Veiðifélagið Hösmagi.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online