Tuesday, September 05, 2006

 

Kaflaskil.

Þó að Fiskihrellir sé nú aðallega að þessum skrifum sjálfum sér til ánægju þá saknar hann nú kommentanna. Bloggfríi Helgu lokið eða hvað? Og skáldið þegir. Hösmagi er nú að hugsa ráð sitt. Pestargemlingur í bili. En samt sem aður reiknar hann nú ekki með því að geta þagað til lengdar. Það verður að skýrast síðar. En eins og fyrirsögnin gefur til kynna eru kannski kaflaskil í lífi Hösmaga um þessar mundir. Heldur þó enn ró sinni enda er það það mikilvægasta af öllu. Bestu kveðjur, ykkar Hösmagi.

Comments:
Hösmagi er einn fárra sem bloggar um þessar mundir og að sjálfsögðu les ég af sömu áfergju og alltaf.
Fáu kommentin þýða bara að þögn er sama og samþykki. Fólk hummar bara í hljóði með pistlunum.
 
Já, sko jú ég á að vera komin úr bloggfríi en er bara netlaus í sveitinni, lofa að bæta úr því í þessum mánuði þegar verkefni eru komin í höfn. Ég sit annars á hótel Vík og verkjar í augun að horfa á dani vinna okkur í fótbolta. Skid og sikket noget rövl.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online