Wednesday, August 16, 2006

 

Auli.

Einar Oddur segist vera auli. Stundum gott að geta viðurkennt staðreyndir. En ef hann væri mesti aulinn í þinginu væri ástandið þó miklu betra. Það eru því miður fleira aular þarna og svo miklir aulastaular að það er bara sorglegt að hugsa til þess. Þegar ríkisendurskoðandi bendir á að ráðuneytin hafi farið 9 milljarða fram úr á fjárlögum þá kippast þessir menn við og segja að þetta sé alveg rétt. Og Einar Oddur viðurkennir kinnroðalaust að vera auli. Það gerir dýralæknirinn sem nú heldur ríkiskassanum volgum hinsvegar ekki. Enda engin von til þess. Hann er nefnilega miklu meiri auli en Einar Oddur. Segist vera að vinna í málunum og allt sé á réttri leið. Þær sagnir ganga nú fjöllum hærra að þessi gullormur sé nú að þreifa fyrir sér um framboð hér í suðurkjördæmi í næstu þingkosningum. Menntamálaráðherrann orðinn varaformaður og verður að fá 1. sætið á Reykjanesi. Gullormurinn getur ekki verið þekktur fyrir að vera bara númer 2. Hverskonar djöfuls della er þetta eiginlega? Við sunnlendingar höfum ekkert með þennan mann að gera. Mér koma framboðsmál íhaldsins hér raunar lítið við. Það hefur lengi loðað við þingmenn sunnlendinga að vera ekki skörungar úr hófi fram. Heiðarlegar undantekningar eru teljandi á tveim þrem puttum. Vonandi verða þó breytingar á þessu. Við ættum að geta komist upp úr þessari yfirgengulegu meðalmennsku sem tröllriðið hefur þinginu að undanförnu. Eða hvað? Kannski vilja menn bara hafa þetta svona. Eða vill ekki almennilegt fólk útsvína sig á þessu. Kannski birtir til. Með kveðju úr blíðunni, ykkar Hösmagi.

Comments:
Já, listinn yfir sjálfstæðismenn í kjördæmi þínu er að verða vægast sagt skrautlegur. Fyrrverandi fangi stefnir inn á þing aftur og einn foringjanna í stærsta sveitarfélaginu er maður sem er þekktastur fyrir ölvunarakstur og sem ljósastaurabani.
Eins gott að fólk getur sett krossinn sinn annars staðar á næsta ári (þó að það geri það sjálfsagt ekki, Íslendingar eru svo aumingjagott fólk.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online