Sunday, January 22, 2006

 

Hrygna.

Sunnudagur. Letidagur eins og hjá Helgu. Að mestu haldið mig við rúmið mitt góða. Ráðið krossgátur og dormað á milli. Mér gengur ekkert að kommentera á blogg annara. Ætla því að óska nafna mínum hjartanlega til hamingju og móðurinni að sjálfsögðu líka. Tek undir að þær eru flottar. Ég var víst voðalega ljótur þegar ég fæddist. Svakalega feitur. Og höfuðleðrið einhverjum númerum of stórt svo lítið sást í augun. 11 pund að þyngd. Sem sagt tveim pundum þyngri en hrygnan þeirra Sigga og Gunnhildar. En spikið rjátlaðist nú af mér. Og það tognaði úr mér. Eins og flestir vita er ég nú bara hávaxinn, spengilegur og fjallmyndarlegur. Skeggið varð að vísu grátt á þrem mánuðum fyrir margt löngu. Eykur bara virðuleikann. Og kvenhylli mín er alltaf jafnmikil. Þar er þó hængur á því náttúran hefur dofnað. Kannski kemst ég einhverntíma á 3ju náttúruna og verð alveg voðalegur skjortejæger. Aldrei að vita.
Bílagenið er enn að. Alltaf að spá og spekúlera. Tveir í takinu. Annar flöskugrænn en hinn hvítur. Einhvernveginn er ég nú hrifnari af þeim dökka. Og það er annaðhvort að drífa í þessu í vikunni eða hætta alveg að skoða uppboðsvefinn. Þetta er náttúrulega bilun eins og sagt er. En það er líka mörg bilunin í mannskepnunni og þessi ekkert verri en hinar. Rauðbröndótta letidýrið sefur hér á dýnu. Pælir hvorki í hestöflum, DVD eða GPS. Hefur fóstra sinn fyrir sig einan þessa helgina eins og flestar aðrar. Kærar kveðjur frá okkur báðum, ykkar Hösmagi.

Comments:
Ég tek bara hamingjuóskum þínum hér og nú og þakka kærlega fyrir. Ætli það sé annars nokkuð öryggis-stafarunan neðst á kommentagluggunum sem er að hindra þig? Ómögulegt að lifa við það að komment frá Hösmaga séu tæknilega útilokuð.
 
Blessadur og saell haengur - hvad um 140 pund nuna? Eg verd ad taka undir thad ad floskugraenn er fallegri litur a bil en hvitur thott eg hafi nu ekki sed thann draumavagn thinn. Kem thessari skodun minni tho a framfaeri. Bestu kvedjur fra Gotlandi, SBS
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online