Wednesday, December 21, 2005

 

Afmæli.

Fyrir nákvæmlega einu ári sat ég í stofunni hjá skáldinu og Helgu. Í Lögmannasundi. Leyndardómar bloggiðjunnar opnuðust Fiskihrelli, Laxaspilli, Urriðaskelfi og Hösmaga. Ég hafði svo sem heyrt ávæning af að fólk stundaði þessa iðju. Einhvernveginn tókst skáldinu að fá mig til að skrá mig inn og ég skrifaði nokkrar línur. Fyrsti og eini pistillinn af erlendri grundu. Tíminn, hann er fugl sem flýgur hratt. Og ég held að pistlarnir séu orðnir 116 að tölu. Sem betur fer er þetta nú engin kvöð. Og það er líkt með blogginu og ljóðunum að það þýðir ekki að setjast bara niður og ætla sér að blogga. Segja eitthvað mjög spaklegt. Og ég hafði löngu lært að það þýðir ekki við vísnagerð. Þetta verður eiginlega að koma af sjálfu sér. Enda hef ég ekki eytt miklum tíma í þetta. Spekin spýtist út á 5- lo mínútum. Ég laumaðist til þess í vinnunni í dag að kíkja aðeins yfir farinn veg. Eitt ár af mannsævi. Bara gaman. Einskonar slitrótt dagbók. Veiði, pólitík, hið daglega argaþras, bíladellan og kötturinn. Eins og ég hef sagt hér áður veit ég um nokkra sem lesa bloggið mitt reglulega. Og sumir kvarta jafnvel ef lát verður á flæði snilldarinnar. Allt er þetta harla gott. Líklega er Fiskihrellir bara rétt að byrja. Ágætt stundum að stinga niður penna. Kannski er betra illt að gera en ekki neitt eins og máltækið segir. Vona nú samt að ég hafi ekki meitt neinn voðalega mikið. En verðum við ekki að segja það sem okkur býr í brjósti. Enginn hefur hafið meiðyrðamál gegn mér enn. Og vonandi slepp ég fyrir horn. Bestu kveðjur á þessum fallega sólhvarfadegi. Nú lengist dagurinn á ný. Hænufet á dag. Svona 20 mínútur á viku u.þ.b.Ykkar einlægur Hösmagi.

Comments:
Til hamingju með bloggafmælið. Megir þú blogga lengi enn. Þú ert í fremsta flokki bloggara, hef sagt það áður og segi það aftur. Bestu kveðjur frá aðdáanda nr. 1 í Volvóríki.
 
Bestu þakkir. Sendi ykkur Gunnhildi mínar bestu jólakveðjur.Bloggum og bloggum á nýja árinu.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online