Friday, April 08, 2005

 

Hösmagi staðinn upp af koppnum.

Jæja. Loksins er Hösmagi ehf. orðin staðreynd. Eins og þið vitið öll erum við ekkert ef við höfum ekki kennitölu. Bara 0 og ekki til í neinu kerfi. Enginn er til fyrr en hann hefur fengið þessa 10 talna runu. Ýmist með eða án bandstriks. Ef eitthvað er ofnotað og misnotað í þessu þjóðfélagi þá er það kennitalan. Ef þú þarft að leysa vind á almannafæri er vissara að tilkynna kennitöluna áður. Því hvað er viðrekstur án kennitölu? Nákvæmlega ekkert. Svona er þetta bara. Held að persónuvernd ætti að taka þessa grafalvarlegu staðreynd til rækilegrar athugunar. En svona að öllu gamni slepptu er þetta bara hið besta mál. Nú kemur nýtt vasknúmer, veflykill til vefrænna skila á þessum afarlágu sköttum sem Doktor Hösmaga ehf þóknast að greiða til samneyslunnar og fleira og fl. Voða gaman að dunda við þetta. Og svo verður yndislegt að millifæra aurana í tíma og ótíma á milli reiknings Sigurðar Sveinssonar annarsvegar, og Hösmaga ehf. hinsvegar.Skapa þannig mikla veltu á reikningunum og gúddvill í bankanum. Einfalt og snjallt. Í morgun helltist föstudagurinn yfir. Búinn að fara austur á Hvolsvöll og ætla nú að bregða mér til snæðings. Dagurinn því fljótur að líða og indælt helgafrí framundan. Held áfram framleiðslu peninga heima í Ástjörn og læt mig svo dreyma inná milli. Um þann stóra í sumar og fleira. Kærar kveðjur að sinni.

Hösmagi ehf.
Kt. 480405-0210

Comments:
Vil vekja athygli lögmannsins á því að þann 30. mars átti undirrituð ekki aðeins afmæli heldur komu í heiminn 5 kettlingar vestur í bæ. Hefur forráðakona þessara kettlinga beðið undirritaða að bjóða hinum æruverðuga lögmanni á Selfossi einn slíkan.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online