Friday, December 31, 2004

 

Hösmagi.

Gamlársdagur runninn upp. Hér er nú sem stendur yndislegt veður. Logn og hiti um frostmark. Það eru ekki allir sem vita hvað Hösmagi táknar. Dyggir lesendur Grettissögu kannst þó örugglega við nafnið. Hösmagi var sem sé hrútur þeirra bræðra, Grettis og Illuga í útlegðinni í Drangey. Hann hafði þann sið að stanga dyrnar á kofa þeirra til að sníkja. Hrúturinn var grár á maga og þannig varð nafnið til. Þegar óvinir Grettis fóru að þeim í Drangey til að vega þá varð hark fyrir dyrum. Þá mælti Grettir: Knýr Hösmagi hurð vora bróðir? En málið var alvarlegra en svo og flestir þekkja framhaldið. Árið 1994 hóf undirritaður sambúð með ágætri konu. Hún tók fljótlega kettling, læðu, sem var alltaf kölluð Kisa. Svo sem ágætisnafn á kött. Ég tók strax nokkru ástfóstri við dýrið, enda laðaðist það að mér. Jafnvel svo að ég fékk ákúrur fyrir að strjúka það meira en sambýliskonunni. Var jafnvel farinn að sitja á mér við gælurnar ef konan var heima. Eins og fara gerir kom að því að læðan eignaðist kettlinga. Þrjú stykki, eina dóttur og tvo syni. Frumburðinn var Lýsingur eða öllu heldur Sólblómi sem aðeins 7 vikna gamall lagði land undir fót með undirrituðum til Reykjavíkur. Hann var sem sagt á leið til nýrra heimkynna. Til skáldsins míns og móður hans í Þingholtsstræti.Þar var hann sannarlega í góðu fóstri. Hinn bróðirinn var biksvartur. Strax og hann var í heiminn borinn laust nafninu niður í heila undirritaðs. Hösmagi! Þetta var 27. mars 1995. Undir árslok hvarf undirritaður úr sambúðinni og Hösmagi fylgdi með. Við hófum búskap í sænska húsinu. Ég sagði dýrinu strax að hérna ættum við nú heima framvegis og skýrði því frá hvernig komast mætti inn og út úr húsinu. Kötturinn skildi þetta allt til fullnustu enda vorum við vinir og sálufélagar. Ég held að ástin hvor á öðrum hafi verið alveg fölskvalaus. Ég býst við að þetta sé langgáfaðsti köttur sem ég hef kynnst. Ég kann af gáfum þessum margar sögur og segi kannski frá þeim síðar. Kötturinn hélt, að ég held, að hann hafi verið hundur. Eða jafnvel maður. Við áttum margar ánægjulegar stundir saman meðan við bjuggum þarna. Og aldrei í eitt einasta skipti kom hann á sitt fyrra heimili þó það væri aðeins 300 metra í burtu. Minnugur þess hvað ég hafði sagt honum þegar við fluttumst í hið fornfræga hús, Sænska húsið. Kemur við sögu í Radíó Selfoss. Hösmagi hvarf úr lífi mínu í september 1998. Hann hefur þó aldrei horfið mér úr huga og er þar enn mjög sterkur eins og þessi skrif mín sýna. Og nafnið er ég með á heilanum. Ég fékk mér netfang skömmu eftir að kötturinn hvarf. Ekkert nema hosmagi kom til greina. Og þannig er nú notandanafn mitt hér tilorðið.Tími til að nema staðar nú. Verður væntanlega síðasti pistill minn hér á árinu 2004. En vonandi dettur mér eitthvað gáfulegt í hug á næsta ári. Og ég lofa nafna mínum, Sölvavini, veiðifréttum þegar tilefni gefst. Þakka honum líka kærlega kommentið. Og bestu áramótakveðjur til ykkar allra, elskurnar mínar, einkum og sérílagi í sundið mitt í Edinborg. Megi 2005 færa ykkur gæfu og farsæld. Ykkar einlægur Hösmagi alías Sigurður Sveinsson.

Comments:
Sæll og blessaður tengdapabbi. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau liðnu. Mikið er þetta skemmtilegt blogg hjá þér. Ég á nú sjálf svaratan kött eins og þú veist og finnst það grábölvað að fá ekki passa fyrir hann til að geta haft hann með mér á ferðalögum mínum um heiminn. Bretar standa okkur íslendingum framar að því leyti að þeir úbúa passa handa gæludýrum og láta vera að skattleggja bækur.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Hit Counter
Tickets Broker Online